20.12.2006 23:30:38 / espanolayeh
Eftir 4 mánaða dvöl erum við haldnar heim á leið. Til landsins góða
handan við hafið og fjöllin. Óskaplega er land vort nú frítt og
fagurt! ...er ekki talað um að fjarlægðin geri fjöllin blá? 4
mánuðir án egils kristalls eru 4 mánuðir án vökva og 4 mánuðir án
sviðakjamma, sláturs og hrútspunga eru líf án matar. Við höfum nú
fengið að kynnast öðru í staðinn eins og við sögðum frá í upphafi
reisu vorar en það var marglyttur í tómatsósu, djúpsteikt ostasmjör
og kolkrabbi í remolaði glóðaður í eldsteiktum
pizzaofni...lostæti!..en jafnast þó ekki á við íslenskt súrmeti.
Þetta er búið að vera alveg yndislegt í alla staði. Nú þekkjum við
kosti og galla hvor annarar og höfum kynnst öðru fólki líka smá

....en erum afskaplega spenntar fyrir heimkomuna

munum líklega
lítið sofa í nótt en við höfum þó hvor aðra

Ef þið hafið áhuga
þá verðum við hér áfram, en í öðru landi.... So stay tuneeed,
porque nosotros somos las guapas chicas!

Hlökkum til að sjá
ykkur, Saludos Arna Ósk y Lára
»
17.12.2006 22:06:08 / espanolayeh
Fréttayfirlit: í fréttum er þetta helst að á tónleikum Láru á
miðvikudagskvöldið mættu m.a. stjörnurnar stórkunnu Jude Law sem
var ásamt fríðu föruneyti í madridborg vegna frumsýningar
einhverrar væmnar ástarmyndar, Honum á hægri hönd gekk Arna Ósk og
var hún klædd í Gucci kjól. Honum á vinstri hönd var Lára
Rúnarsdóttir klædd í gullkjól frá Armani búinn til úr alvöru gulli.
Jude var svo hrifinn af tónleikunum að hann bauð þeim báðum
penthouse íbúð í London og loforð um að redda Láru útgáfusamning.
Arna fékk loforð uppá milljónir þar sem hann ætlar að gefa henni
kreditkortið sitt. Annað gott í fréttum er að á föstudaginn síðast
liðinn barst kvörtun frá íbúum Andres Mellado nr. 6 vegna bilaðra
íslendinga og vina þeirra sem tróðu sér 5 í 3 manna lyftu. 4 heitir
slökkvuliðsmenn komu á vettvang og björguðu útlendingunum sem voru
skelfingu losnir. Kalla þurfti á áfallahjálp. Síðast en ekki síst
er í fréttum að 4 stúlkur á 30 aldri voru reknar út af kaffihúsi í
miðborg madrid vegna óspekta. Einnig var tilkynnt um rán
aðfararnótt laugardags þar sem ung og falleg stúlka var rænd veski
sínu. Þetta mun vera í 3 sinn sem þessu umrædda stúlka lendir í
klóm ræningja. Fleira er ekki í fréttum.
»
12.12.2006 15:54:15 / espanolayeh
»
10.12.2006 23:05:17 / espanolayeh
Það hefur margt á daga mina drifið síðan ég bloggaði síðast. Ég hef
lítið verið heima, úti öll kvöld á hljómsveitaræfingum eða á
tónleikum. Sá m.a. nouvelle vague og Lauru Veirs sem var afar
skemmtilegt. Svo skrapp ég til danaveldis í langa fríinu okkar og
sá þar afar skemmtilega tónleika með rokksveitinni dr. Spock. Mikið
rosalega var trommarinn í þeirri sveit sætur. I'm in love oh yes I
am. Nú er ég farin að telja niður dagana þangað til ég fer heim.
Bannaði Örnu það þegar það voru 37 dagar eftir. Núna eru ekki nema
10. Það verður yndislegt að koma heim og halda jólin. þangað til
næst... love Lára
»
10.12.2006 11:52:45 / espanolayeh
Það er ýmislegt skemmtilegt búið að ganga á
síðustu daga hjá okkur vinkonum. Á fimmtudaginn var smá tjútt
hérna heima í höllinni okkar, vorum reyndar alltaf á leiðinni
út en náðum aldrei svo langt eins og oft áður...ja við
gleymum okkur oft á kjaftagangi. Á föstudaginn fór ég svo og
hitti Riccardo fyrrverandi roommate okkar Láru, ótrúlega
gaman að hitta hann að venju. En eitt sem var enn
skemmtilegra. Ég var bara ein þarna með fullt af útlendingum
og snakkaði þar af leiðandi bara á ensku. Allt í einu labbar
einhver útlendingur upp að mér og spyr mig hvort ég sé
íslensk! var ekki alveg að fatta hvernig hann vissi það...þá
var hann þarna með íslenskum vini sínum sem sagði að hann
væri næstum viss um að ég væri Íslendingur, ótrúlega skondið!
ég fór að sjálfsögðu beint að pjalla við kauða, fínasti
strákur alveg hreint! fórum til Toledo í gær, en það er bær
hér rétt hjá Madrid, það var fínt en alveg rosalega kalt. Það
er farið að kólna all svakalega hér sem er fínt, ágætis
upphitun fyrir klakann
. En ja við fórum til Toledo með
þýsku vinum okkar og það var sko hægara sagt en gert að finna
stað til að borða á að vanda. Þjóðverjarnir vildu að vanda
eitthvern tapas viðbjóð því það er svo ódýrt en við vildum
bara eitthvað gott, þannig við löbbuðum um í svona klukkutíma
til að finna stað og enduðum á ógeðslega sveittum kínverksum
stað, fengum hár með matnum og aðrar skemmtilegar
uppákomur! Svo hittum við Ósk nýja íslenska
vin okkar og vini hans í gær og það var baaara
gaman...svaka stuð á okkur að vanda og ekki leiðinlegt að
hafa annan íslending með í hópnum! semsagt frábær helgi í
alla staði. Og nú er víst bara ein helgi eftri hérna hjá
okkur...og ekki græt ég það..get ekki beðið eftir að komast
heim...oh það verður svooo ljúft
en þetta er komið
aldeilis gott í bili...
11. dagar!! 
Kv. Arna Ósk
»
06.12.2006 18:39:11 / espanolayeh
Það er eitt sem ég er búin að spá mikið í
síðastliðna 3 mánuði og er engu nær. Þannig er nú það að
margir spánverjar eru með geisladiska hangandi í böndum á
svölunum sínum
....hvað á það að þýða?...ætli þeim finnist
þetta töff ? ? ?
verð að fá að vita hvað er málið
áður en ég fer heim...þetta er náttúrulega alveg
STÓRfurðulegt....hvað haldið þið???
kv. Arna LjÓsk
»
05.12.2006 19:19:23 / espanolayeh
Óóóó já þið lásuð rétt elskurnar mínar!!! Við erum komnar í
helgarfrí á þriðjudegi!!! djös snilld þessir frídagar hér. Það er
víst einhver heilagur dagur á morgun og á föstudaginn og þá eru
spánverjarnir svo sniðugir að þeir fella bara niður fimmtudag
líka!! snillingar með meiru! En nóg af því! Síðasta helgi hjá okkur
var alveg frábær....Lára var með tónleika á laugardaginn og
lukkuðust þeir svona svakalega vel! Troðfullur staður og stelpan í
essinu sínu! Æðislegir tónleikar eins og alltaf þegar þessi
elska þenur raddböndin
Framundan er Erasmus
alþjóðakveld á fimmtudaginn, förum svo líklegast til Toledo á
laugardaginn erum annars ekki búnar að plana allt...en þessi
laaaanga helgi leggst bara helv vel í mig
Annars hef ég bara
ekkert að segja frekar en vanalega....nema láttu þér batna elsku
litla sysitr mín, koss og knús frá mér til þín
Kv. Arna Ósk........
»
02.12.2006 10:51:12 / espanolayeh
»
29.11.2006 18:26:11 / espanolayeh
Arna er að rústa mér í commentum. Þegar ég skrifa commentar einn en
þegar Arna skrifar þá eru alveg 10 comment. Góð Sigríður Erna!!!!
koma svo hinir vinir mínir... eða hvað á ég enga vini....
»
29.11.2006 17:30:37 / espanolayeh
halló halló kæru lesendur. como estas? Ég er með góðar fréttir, ég
er komin með mín fyrstu gigg í Madridborg. það fyrsta er núna á
laugardaginn kl. 23 á stað sem heitir Lincon del arte nuevo. Hann
er lítill og kósí með rauðum sófum. Það verður gaman. Á morgun koma
mamma mín og pabbi minn í heimsókn og það verður gaman. Á kvöld er
ég að fara á tónleika með frábærum tónlistarmanni sem heitir
Sparklehorse. Það verður gaman. Á morgun er ég að fara með mömmu og
pabba á ennþá betri tónleika með Lauru Veirs. Það verður gaman. Á
föstudaginn ætlum við svo að vera túristar í Madrid. Það verður
gaman. Á morgun eru 3 vikur þangað til við komum heim. það verður
gaman. Jólin eru að koma. Það verður gaman. Lallarall kveðja Lalli.
»
22.11.2006 19:34:57 / espanolayeh
jæjajæja, þá erum við byrjaðar í
vettvangsnámi hér í útlandinu! Svaka stuð það. Ég er með 6
ára grislinga sem eru að læra að lesa og eru algjör yndi. Það
kom mér heldur betur á óvart hvað skólinn hér er líkur
grunnskólum heima, eru meira að segja með tölvur í öllum
kennslustofum, 2-3 og fínustu tölvustofu með glænýjum
tölvum...ja spánverjar eru greinilega ekki aftarlega á
merinni í öllu sjáið til! Einu viðbrigðin eru að kennararnir
eru soldið háværir og strangir margir hverjir, rífa harkalega
í krakkana og kasta þeim til og garga eins og þeim einum er
lagið! En ju við erum nú á spáni og fólk hér er sagt mjög
blóðheitt ekki satt? En nóg um það....nú er Eyrún komin heim,
en aftur hefur fækkað um eina Bleika í kotinu þar sem Lára er
farin til Alicante að hitta kæró...meiri vitleysan í þessum
kæróstelpum
. En við höldum okkar striki eins og ekkert sé,
erum að spá í að halda partý á laugardaginn en Lára kemur þá
um kvöldið, og erum við eiginlega tilneyddar til að halda
partý því þetta er næst síðasta helgin okkar hér þar sem við
getum gert eitthvað allar saman! ja næst síðasta...því
helgina eftir það koma foreldrar Láru og mamma Óskar og svo
fer Lára að hitta kæró í kóngsins Köben! og þá er svo bara
ein helgi eftir! JJIII minn hvað þetta er fljótt að
líða...við verðum farnar að éta jólasteikina áður en við
vitum af! Svo var elskulegur tutorinn okkar að bjóða okkur í
einhvern jólamat 4 des
...spænskur jólamatur...hljómar vel
.......en þetta verður spennandi
Annars er bara brjálað að
gera hjá okkur í fyrsta sinn frá því við komum, vettvangsnám
alla morgna og svo tekur skólinn við til 16:30....komum
kolbeyglaðar og þreyttar heim í jólatjill með familíunni

og ja eitt enn...við vorum með fullt af
skemmtilegum myndum úr Halloween partýinu og frá Barcelona á
myndavélinni minni...en viti menn ákveður sú gamla ekki bara að
eyða öllum myndunum að sjálfu sér!! ja myndavél með aldeilis
sjálfstæðan vilja! er ekki sátt !
eeeennnn....er hætt í bili
Adios Amigos! Arna Ósk
»
18.11.2006 22:31:08 / espanolayeh
ftir þessa færslu þá höfum við stöllur (ég og mínar ástsælu
vínkonur) ákveðið að 16. desember verður stór og mikill dekurdagur.
Við höfum pantað nudd, hand og fótameðferð ásamt fleiri stórgóðum
aðgerðum og góðheitum. Vinir og vandamenn, jólagjafirnar ykkar
verða minni í ár....
»
18.11.2006 19:39:33 / espanolayeh
Nú er ég komin með aðeins í tána, finn fyrir örlitlu í kálfa sem
þýðir að rauðvínið er að kikka inn. Þá sem svo oft áður færist yfir
mig værð og ég verð afskaplega væmin. Í þessari færslu langaði mig
að koma frá mér einu afar merkilegu og nytsamlegu til samfélagsins.
Það er nú bara þannig að eftir þessa miklu og stórgóðu reisu okkur
yfir himin og höf hef ég lært eitt og það er hversu mikilvægt er að
hugsa um sjálfan sig. Góðu lesendur ekki gleyma ykkur í stressinu,
nú er að koma jól. Jólin eiga að snúast um gleði í hjörtum og söng
af vörum. Þannig er nú það. Í staðinn fyrir að kaupa rándýrar
jólagjafir fariði í nudd eða slökun eða gerið eitthvað sérstakt
fyrir ykkur sjálf. Þið eigið það skilið. kv. frá Láru sem segir
.... bla bla bla eða bra bra bra
»
17.11.2006 20:53:23 / espanolayeh
»
15.11.2006 12:22:35 / espanolayeh
Arna telur niður dagana þangað til við förum heim. Það fer um mig
hrollur þegar ég veit hversu stutt er eftir. Ég sem er farin að
venjast því að hafa allan tímann í heiminum til þess að gera
ekkert. Hef lesið jafn margar skáldsögur núna eins og síðustu 2
árin. Me loví loví þetta líf....dont wana go home!!!
»
Síður:
1 2 3 ...
5